Heimasíða Freydísar
Klukkan
tv stöðvar
gröfuvinna
járn og stál
Brúðkaupið okkar
Fræðsluvefir
28.12.2009 17:49:17 / Freydís

Ársuppgjör

Eins og þið hafið kannski tekið eftir þið sem að kíkið á síðuna að það hefur nú ekki verið mikið um blogg á þessari síðu. En ég lofa að bæta mig á nýju ári.
Svo hérna kemur yfirlit yfir allt það sem að hefur gerst á árinu.

Í janúar varð Róbert 34 ára gæji og í sama mánuði komumst við að því að ég væri orðin ófrísk.Það var mikil tilhlökkun að eignast annað barn, en málið var að nú þurfti ég að fara að vinna til að fá fullt fæðingarorlof og þá hófst leitin af vinnu. Katla Ósk komst inn á leikskólann Blásali og byrjaði þar 2.febrúar og aðlögunin gekk svona upp og ofan, hún grét mikið fyrstu vikuna en svo varð allt í lagi. Ég fékk vinnu í Hafnarfirð 9. febrúar við að aðstoða í eldhúsi, ég tók vinnuna svo að ég fengi fæðingarorlof og vann frá 9 -13 og svo fór ég að vinna til 13:30 en Katla Ósk var á leikskólanum frá 8:30 - 14. Þessi vinna var mjög skemmtileg en bakið mitt þolir ekki mikið álag svo að ég byrjaði í sjúkraþjálfun fljótlega eftir að ég fór að vinna. Ég var dugleg að mæta í ræktina með sjúkraþjálfuninni og var að æfa fram á næstum því síðustu viku meðgöngunar. Ég fór í mæðraskoðun og 20.vikna sónar og þá kom í ljós að önnur stelpa væri á leiðinni og vorum við á bleiku skýji eftir að við vissum það. Jói og Dóra eignuðust svo strák í apríl sem fékk nafnið Ólafur Örn. Í maí varð ég svo 30 ára og fékk fullt af fínum gjöfum og fullt af góðum gestum í heimsókn. Ég vann svo í júní og júlí og svo fórum við fjölskyldan í smá frí á Hofsós í ágúst og svo hætti ég að vinna 12.ágúst. Katla Ósk fór með ömmu og afa á Gullmolanun í nokkrar ferðir og gisti hjá þeim. Svo fóru þau oft í ísbíltúr á húsbílnum eða bara í nestisferð. Það fannst henni rosalega gaman. Prinsessan okkar kom svo í heiminn 8.sept 14.merkur og 52 cm með dökkt hár og blá augu. Fæðingin gekk eins og í sögu og var
hún fljót að skjótast í heiminn. Hún var svo skírð hjá ömmu og afa í Hraunbænum 24.okt. Viktoría Rós af sr. Hjálmari. En fljótt breytist verður í lofti. 9.nóv greinist svo pabbi minn með krabbamein, hann ákvað strax að hann skildi sigrast á þessum sjúkdómi. Hann var heima í nokkra daga eftir að hann greindist en svo varð hann að leggjast inn vegna veikindana. Hann var alltaf mjög hress en þreyttur þegar við komum að heimsækja hann. Við gáfum honum bók og súkkulaði og stelpurnar sendu honum kveðju á ljósmynd sem að hann var stolltur af og sýndi öllum hjúkkunum fallegu afastelpurnar sínar. En í desember byrjun þá átti hann afmæli og varð 56 ára og fórum við öll fjölskyldan niður á spítala til hans eins og við gerðum á hverju kvöldi eftir að hann lagðist inn. Nema að stundum þá varð Katla Ósk eftir hjá Dísu og Kristjáni.  Við færðum honum ávexti og súkkulaði og hann sat með okkur í smá stund á setustofunni en varð svo að fara aftur inn í herbergið sitt þar sem að hann var svo slappur. En 4.desember hringir Róbert í mig og segir mér að ég verði að fara niður á spítla því að honum hafi hrakað svo mikið. Kl 12:20 kvaddi pabbi þennan heim.
Hann var svo jarðaður 17.desember. Hvíldu í friði elsku pabbi minn.
´Svo rann aðfangadagur upp og við vorum öll hjá mömmu og borðuðum fullt af góðum mat og fengum ís í eftirrétt. Og þar var sko spennandi að opna pakka og Katla Ósk var mjög duleg við að hjálpa okkur að opna pakkana, svo opnaði hún pakkann frá okkur og í honum var prinsessukjóll, mín dreif sig bara úr jólakjólnum og skellti sér í prinsessukjólinn. Svo á jóladag þá varð hún 3 ára skvísa, við héldum smá kaffiboð fyrir ömmu Önnu,ömmu Höllu, Snædísi og Óla Val. Hún fékk einnig fullt af gjöfum.
Svo fer að líða að áramótunum og þá ætlum við að vera bara heima hjá okkur.
Við þökkum öllum sem hafa sýnt okkur vináttu og hlýjug á erfiðum tíma og vonum að þið eigið öll gæfuríkt ár 2010.
Kv.
Freydís

» 13 hafa sagt sína skoðun

21.04.2009 14:52:17 / Freydís

Jæja tími á blogg

Hérna er allt við það sama.
Og fyrir ykkur sem vita það ekki þá erum við hjónin í fjarnámi frá FÁ og nú fer að líða að prófunum hjá okkur. Annað okkur er í dönsku og íslensku og hitt í ensku og stærðfræðí.
 
Jói og Dóra eignuðust lítinn prins í morgunn kl hálf fimm. Hann var 15 merkur og  52 cm. Til hamingju með prinsinn ykkar.
 
Katla Ósk er alltaf söm við sig, farin að tala fullt og er mjög sjálfstæð ung dama. Henni gengur vel í leikskólanum og alltaf líf og fjör þar hjá henni. Sl. föstudag þá var bollukaffi og foreldrum var boðið að koma. Krakkarnir höfðu bakað bollur og var gaman að sjá allar flottu myndirnar sem að voru teknar af þeim við bollubaksturinn. Svo voru þær líka mjög góða á bragðið.
 
Það er líka von á litlu kríli hérna á bænum um miðjan sept. Þannig að það er nóg að gera hjá okkur. Ég er enn að gubba komin 19.vikur og í næstu viku þá förum við í 20 vikna sónarinn og þá er bara spurning hvort að þetta sér stelpa eða strákur :O)

» 14 hafa sagt sína skoðun

19.04.2009 17:43:10 / Freydís

Afmælisbörn í Maí.

1. Tor
4. Rannveig
4. Rannveig K.
5.Kidda
7. Svana
9. Ingi Sv.
9. Sibba
10. Ég
10. Ingibjörg (látinn)
12. Dagný
13. Sigvaldi
13. Emil Atli
15. Kári
18. Hafdís
20. Halla
21. Snædís
23. Anna
23. Sigga
23. Ívar Jóhannes
25. Ásta
26. Selma
27. Helena
30. Kiddi
30. Ásta

» 12 hafa sagt sína skoðun

19.04.2009 17:39:45 / Freydís

afmælisbörn í apríl

4. Torfi Pálmar
6. Atli Fjalar
7. Mary
7. Guðrún
8. Ellen
8. Sylvía
8. Live
10. Mæja
15. Hólmar
16. Amy
17 Hjálmar
18.Fanna
18, Óli
23. Hanna
25. Gudda
25. Dísa




» 13 hafa sagt sína skoðun

19.04.2009 17:36:40 / Freydís

afmælisbörn í mars.

1. Eygló
3. Lára Valdís
7. Steini
22. Alla

» 13 hafa sagt sína skoðun

19.04.2009 17:34:35 / Freydís

afmælisbörn í feb.

5.  Sóley
5.  Anna H.
15. Díana
16. Birna.
17.Ingólfur
18. Birkir
19. Steinn Gunnar
23. Belinda
25. Björg
28. Elín Eik
28.Bjarki

» 10 hafa sagt sína skoðun

02.01.2009 13:46:48 / Freydís

afmælisbörn 2009

2. jan. Símon Halldórsson

2. jan. Kristborg Bóel.

2.jan. Ragna Jara.

3. jan. Simmi Vill

4. jan. Eva María

4. jan. Sigrún Ferd.

6.jan. Róbert minn

6.jan. Guðmundur Þorst.

7.jan.  Agnes Brá

7.jan.  Amelía Nótt

7.jan Vilborg

10.jan. Ásta Kr.

12. jan  Hilma

13. jan. Þorgils Magnússon

13. Sara Lind Róbertsdóttir

15. jan. María

15. jan. Sæmundur Óli

16.jan. Freyja

18.jan Helgi Seljan

18,jan. Berglind Beck

20.jan Aldís Una

21. jan. Tómas Elí

24.jan. Úlfar Andri

31.jan Arnar og Daníel


» 12 hafa sagt sína skoðun

02.01.2009 13:40:49 / Freydís

Gleðilegt ár allir saman


Jæja er nú ekki komin tími á skrif á þessu herrans ári 2009.

Ég man þegar ég var svona 16 ára og var að hugsa um árið 2000, vá hvað það yrði langt í það og svo er bara allt í einu komið 2009. Hvað hefur orðið um öll þessi ár.
Árið 2000 kynntumst við Róbert og eftir það hefur tíminn bara flogið áfram. Við trúlofuðum okkur 2001, Giftum okkur 2005, fórum til Mallorca 2005 og 2006, eignuðumst Kötlu Ósk í lok 2006, og svo bara er tíminn búinn að fljúga. Ég veit ekki hvað verður um allan þennan tíma.
Maður hefur aldrei tíma fyrir hvorki eitt né neitt, er ótrúlega latur að heimsækja fólk, en nú verður sko breiting á því. Við lofum að vera dugleg kíkja í kaffi.

Það var margt að gerast hjá okkur á síðasta ári, Katla Ósk þroskaðist og stækkaði og byrjaði að tala á fullu. Hún veit sko alveg hvað hún vill og er ekkert að láta fólk spila með sig.  Hún er byrjuð að tala alveg á fullu og segir öll orðin mjög skýrt og segir ekkert nema að vera alveg viss um að geta sagt það.


Róbert er alltaf að vinna á sínum stað hjá GA smíðajárni og ég er ennþá heima með Kötlu Ósk. Nú er stefnan tekin á FÁ í fjarnám núna í janúar. Og Róbert ætlar líka að fara og þá verður nú gaman að geta lært saman.  En það á örugglega eftir að ganga á ýmsu, því að ég,Róbert og hjálpsemi eigum ekki saman :O) en við skulum nú vona að þetta reddist allt saman.

Ræktin var tekin með trompi á síðasta ári og byrjaði ég í febrúar í tímum hjá Guðbjörgu, það var rosalega gott að byrja aftur í ræktinni. Síðan hef ég mætt 6 x í viku í ræktina. Svo 6. janúar þá byrja ég á átaksnámskeiði nr 3 og bíð ég spennt eftir að byrja.

Ég vil þakka öllum fyrir frábært ár sem er liðið og vona að þið eigið öll eftir að eiga gott og gæfuríkt ár 2009.

Kv,

Freydís

» 12 hafa sagt sína skoðun

29.11.2008 17:50:59 / Freydís

afmæli í des.

1. des pabbi  55 ára

2. des Bríet

5. des Dögg

5.des Hilla

6. des Anette

7. des Berglind

8. des Mikael Rafn

11. des Pálína

12. des Solla 30 ára

13. des Stína

13.des Guja (látin)

14. des  Baldvin G,

15. des. Mamma

15. des. Amma Rebekka

15. des. Runólfur (látinn)

15. des Indiana Karítas

19. des. Jónatan

24.des. Jóna

25. des Katla Ósk 2 ára

25. des Steingrímur

25. des. Óli Sævar

27. des. Hulda Ósk

27. des Linda P.

30. des Haukur Tandri

31.des. Sigríður Línberg







» 11 hafa sagt sína skoðun

29.11.2008 17:46:25 / Freydís

Héðan er nú lítið að frétta.

Hæ hæ.

Nú er sko greinilega kominn vetur. Það er búið að vera frekar kalt upp á síðkastið og hefur maður verið í úlpu nánast upp á hvern einasta dag. Og þegar ég hef verið að fara út að labba þá er farið í sokkabuxur og snjóbuxur. 
Jólalöndin mín eru kominn á sinn stað og er orðið voðalega kósý hjá okkur. Kötlu Ósk finnst þetta allt vera frekar spennandi. Og hún vill fá að passa jólasveinanna þegar hún er að borða. 
Nú fer að styttast í afmælið hennar en það er bara rétt mánuður í það. Þá verður þessi elska 2 ára.
Svo fer átaksnámskeiðinu mínu að ljúka og hefur mér bara gengið ágætlega á því. Ég hef líka verið dugleg eða mæta í aðra tíma. Og í fyrradag fórum við í gufu og borða í baðstofunni niður í Laugum. Það var æðislegt, ég náði að slaka svo vel á að ég var bara dösuð í gær og nennti ekki að fara í leikfimi.
Heldur skelltum við mæðgurnar okkur í Smáralindina að kaupa jólapappír og merkimiða.
Og kíktum auðvitað á Dódó í leiðinni.
Katla Ósk er voða dugleg að tala, hún getur sagt hvað hún heitir, og hvað ég heiti og pabbi hennar. Það koma ný og ný orð hjá henni á hverjum degi og þegar við erum að labba niður stigann þá telur hún alltaf tröppurnar. 
Ég verð nú að viðurkenna það að ég farin að hlakka til jólana, við ætlum að vera heima hjá okkur, og enn á eftir á að ákveðja hvað verður í matinn á aðfangadag.

» 12 hafa sagt sína skoðun

29.11.2008 17:40:16 / Freydís

afmælisbörn nóv.

1. nóv  Jói

3. nóv  Bjarki Sigurpáll

5,nóv. Drengur Bogason

5.nóv. Runólfur Óskar

6. nóv. Björg Inga

6.nóv. Sigurjón Scheving (látinn)

6. nóv. Ingólfur Jónsson (látinn)

12. nóv. Ólöf Snædís

13.nóv  Grétar frændi

25. nóv. Stebbi frændi.



» 13 hafa sagt sína skoðun

06.11.2008 14:20:41 / Freydís

Elsku afi minn.

Í dag 6.nóv. hefði lang besti afi minn orðið 85 ára. En það eru 19 ár síðan að hann dó.

Scheving afi eins og hann var alltaf kallaður var besti afi í heimi. Þegar ég fæddist þá átti ég heima í kjallarnum hjá honum og ömmu á Heiðarvegi 6.  Ég og afi vorum alltaf góðir vinir. Þegar ég var lítil þá fór hann með mér að gefa öndunum brauð inn á Andarpolli.
Svo fluttu amma og afi í Kóparvog í Melgerðið þá fórum við alltaf í heimsókn til þeirra og þar lærði ég nú marga skemmtilega ósiði, eins og að svindla í Olsen olsen, en við afi skiptum alltaf áttunum á milli okkar og þannig unnum við afi ömmu. Amma var brjáluð við afa fyrir að vera að kenna barninu að svindla en okkur fannst þetta bara fyndið. Ég var alltaf mikil afastelpa. Afi fór að vinna hjá Frón og einu sinni kom hann í ABC blaðinu. Þegar ég hringdi í afa og ömmu þá bað ég afa oft um að senda mér svona krakkakex í fjólubláupökkunum( í dag er það polokex) og auðvitað sendi afi stelpunni sinni fullan kassa af kexi. Afi minn var alltaf svo góður. 
Amma og afi fluttu svo í Hafnarfjörð og þegar við vorum að koma til þeirra þá sat hann alltaf í stólnum sínum við gluggann og var að flokka frímerki, leysa þau upp og setja þau í bók. Mér fannst þetta auðvitað mjög spennandi og fór upp frá því að safna frímerkjum, og afi var mjög duglegur að senda mér frímerki. Hann gaf mér einu sinni frímerkjabók til að setja öll frímerkin mín í og utan á hana skrifaði hann Til Freydísar frá Scheving afa. Mér þykir ennþá vænt um þessa bók og í henni eru frímerki sem að afi gaf mér.  Ég sat oft á stól við hliðina á honum við skrifborðið og hjálpaði honum að þurrka frímerkin og setja þau svo á sinn stað.  Amma og afi áttu líka akfeitann kött sem að þeim þótti mjög vænt um, það mátti aldrei skamma köttinn og hann kúrði alltaf hjá afa.
Ég hugsa um afa minn á hverjum degi og vildi óska að hann hefði ekki verið tekinn svona snemma frá mér, því að ég hefði viljað hafa afa minn miklu lengur hjá mér. Ég hefði viljað að hann hefði kynnst henni Kötlu Ósk, þeim hefði sko liðið vel saman og hann hefði geta kennti henni svo margt. En í staðin verð ég bara að segja henni hvað hún hefði átt góðan langaafa, sem að hefði þótt mjög vænt um hana og henni hefði þótt vænt um langaafa sinn.
Elsku afi til hamingju með afmælið þitt. Við förum í kirkjugarðinn á eftir með blóm og kerti handa þér. Hvíldu í friði og knúsaðu ömmu frá okkur.
Þín
Freydís
 

 

» 12 hafa sagt sína skoðun

15.10.2008 15:55:04 / Freydís

ÁTAKSNÁMSKEIÐ NR 2

Nú fer átaksnámskeiðnu að ljúka en síðasti dagurinn er 28.okt. En þá er bara að halda áfram að sletta úr klaufunum og skrá sig á annað námskeið sem að hefst 30 ok til 9.des.
Haldið þið að ég verði ekki orðin flott á jólunum. í kjólinn fyrir jólin.  Mér finnst ég vera búin að standa mig rosalega vel á þessu námskeiði, enda er Guðbjörg alveg frábær kennari, hún hvetur mann svo áfram. Hún sagði mér td að kaupa mér púlsmæli og núna veit ég að ég er að brenna og get fylgst með hjartslættinum og kaloríunum. Ég mæli með því að allir sem eru að æfa fái sér svona.

Verð að þjóta.

kv.

Freydís

» 14 hafa sagt sína skoðun

13.10.2008 16:15:47 / Freydís

allir að hressast

Halló.

Jæja nú fer þessari pest senn að ljúka og allir að verða hressir. Ég fór nú reyndar í leikfimi á fimmtudaginn og var furðulega vel á mig komin miðað við veikindin sl daga á undan.  Svo fór ég í ræktina á laugardaginn og þar losnaði ég við fullt af orku sem var bara mjög gott.

Katla Ósk er líka öll að hressast, útbrotin fóru um leið og við komum meðalinu ofan í hana, en hún var með hita á laugardaginn og hefur ekki fengið að fara út í marga marga daga. Stelpugreyið. En það verður sko bætt úr því um leið og hún verður orðin hraust aftur. Latibær og Dóra hafa gengið hérna í dvd til skiptis, og á milli er leikið og lesið.

Róbert er sá eini sem að hefur sloppið við þetta ógeð og vonandi er hann bara nóg og eitraður til að fá þetta ekki, því að þetta er ekki skemmtilegt.
 
 

» 12 hafa sagt sína skoðun

06.10.2008 17:12:45 / Freydís

afmælisbörn okt. 2008

1.okt. Elín Ásta 2 ára

4. okt  Hermann Þór 28 ára

8.okt Hekla Ýr

10.okt Logi Geirsson

10.okt. Malla

10.Okt Gulla Snæ.

12. okt Sara Lind

11. okt Gummi Jóns.

11. okt  Björn Jörundur

11. okt Svanhildur Hólm

12.okt Bernhard Geirasson

17.okt  Victor Geirasson

16.okt Birgitta Lind

16.okt Eyjólfur Brynjar

28 okt Björgvin Páll



» 12 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 19
Heimsóknir
Í dag:  52  Alls: 65492
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1141 dögum
Katla Ósk 2 ára
Dagsetning
9. febrúar 2012
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Könnun
áttu líkamsræktarkort???



Leitarbox